Sif Sveinsdottir · Sálfræðimeðferðarfræðingur MPF | Aalborg & í fjarviðtali · Enginn biðlisti

Þú þarft ekki að gera þetta ein(n)

Sálfræðimeðferð fyrir Íslendinga í Aalborg — og íslenskumælandi í Danmörku.

Viðtölin fara alfarið fram á íslensku — engin danska nauðsynleg.

Ekki viss enn? Veldu ókeypis kynningarsímtal í bókuninni.

Portrait of Sif Sveinsdottir, English‑speaking psychotherapist supporting expats in Aalborg
Sif Sveinsdottir · Sálfræðimeðferðarfræðingur MPF | Aalborg & í fjarviðtali · Enginn biðlisti

Þú þarft ekki að gera þetta ein(n).

Sálfræðimeðferð fyrir Íslendinga í Aalborg — og íslenskumælandi í Danmörku.

Viðtölin fara alfarið fram á íslensku — engin danska nauðsynleg.

Ekk viss enn? Veldu ókeypis kynningarsímal í bókuninni.

Hæ, ég heiti Sif — sálfræðimeðferðarfræðingur í Álaborg

Ég er upprunalega frá Íslandi og flutti til Álaborgar fyrir meira en 20 árum. Þar sem ég bý sjálf fjarri heimaslóðum skil ég hversu yfirþyrmandi lífið getur verið — sérstaklega þegar þú ert langt að heiman.

Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvað er að. Ég mæti þér af hlýju og nærveru, og saman sköpum við rými utan um það sem er þungt, svo það verði auðveldara að vera þú. Í meðferð þarftu ekki að takast á við erfiðu hlutina ein(n). Þú færð stuðning og nýjar leiðir til að skilja og takast á við það sem þú ert að ganga í gegnum — á þann hátt sem getur skipt raunverulegu máli í daglegu lífi þínu.

Stofan mín er á Kalkskrænten í Álaborg á Norður-Jótlandi, og ég býð einnig upp á fjarviðtöl um alla Danmörku.

Viðtöl á íslensku, dönsku eða ensku.

Portrait of Sif Sveinsdottir, English‑speaking psychotherapist supporting expats in Aalborg

Kannast þú við þetta?

Kannski kemur eitthvað af þessu kunnuglega fyrir

  • Þú fluttir hingað vegna vinnu, náms eða sambands – en það varð öðru vísi en þú bjóst við.
  • Þú saknar fjölskyldu og vina, og heimahagarnir geta virst óralangt í burtu.
  • Á yfirborðinu gengur allt vel — í vinnunni og á meðal fólks — en þér líður ekki vel.
  • Að byggja upp nýtt líf í Danmörku tekur meiri orku en þú átt, og sumir dagar eru mjög erfiðir.
  • Þú liggur andvaka á nóttunni og hugsar í hring og það sem er erfitt virkar sífellt meira  óyfirstíganlegt.
  • Þú átt erfitt með að setja orð á það sem er  er erfitt — og ennþá erfiðara á öðru tungumáli.

Sálfræðimeðferðarfræðingur í Aalborg

Meðferð sem hjálpar við því sem hvílir á þér.

Hvað sem það er, þá er leið. Lestu meira hér að neðan.

Líf erlendis og aðlögun

Einmanaleiki, menningarsjokk, breytingar á sjálfsmynd og fjarlægðin frá fjölskyldunni — fáðu stuðning við að fóta þig í lífinu sem útlendingur í Danmörku.

Ekki viss hvað það er?

Þú þarft bara að finna að eitthvað íþyngir þér og hverfur ekki af sjálfu sér. Þú þarft ekki að setja orð á það — saman finnum við leiðina.

Kvíði

Lærðu að vinna með eirðarleysi, áhyggjur og líkamleg viðbrögð, svo kvíðinn stjórni ekki lengur.

Þunglyndi

Enduruppgötvaðu orku og tilgang með meðferð sem hjálpar þér að skilja og vinna úr þungum tilfinningum.

Streita og kulnun

Lærðu að setja mörk, róa taugakerfið og skapa betra jafnvægi á milli álags og orku

Áföll og áfallastreita

Við vinnum með erfiða reynslu, með samtali og tökum líkaman með, til að hjálpa þér að fá innri ró aftur.

Sorg og áfall

Fáðu stuðning við að takast á við sársauka og missi og rata smám saman aftur til lífsins.

Lítið sjálfsmat

Styrktu sjálfsvirðingu þína og lærðu að mæta sjálfum þér með viðurkenningu í stað gagnrýni.

Átraskanir

Skildu rótina að sambandi þínu við mat og líkama og finndu heilbrigðara jafnvægi.

Meðferð hjá Sif Sveinsdottir

Hvernig meðferðin þín hefst

Það er í lagi þótt þér finnist allt í kaos. Þú þarft ekki að hafa neitt á hreinu — ég hjálpa þér að komast i gang.

Hvernig þú getur byrjað

Byrjaðu á stuttu, ókeypis kynningarsímtali – eða bókaðu tíma beint ef þú ert tilbúin/n. Þú velur í netbókuninni.

Við finnum leiðina saman

Þú segir frá því sem er þér efst í huga. Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja hjálpa ég þér – svo við finnum leiðina saman.

Meðferð á þínum forsendum

Við hittumst eins oft og þú þarft – og aðlögum okkur eftir framvindu þinni og því sem þú hefur þörf fyrir.

Tilbúin/n? Bókaðu tíma →

Sálfræðimeðferð í Álaborg— fáðu tíma innan fárra daga.

Reynsla skjólstæðinga af Sif Sveinsdottir

Hvað fyrrverandi skjólstæðingar segja um meðferð sína

Lítið úrval af þeim umsögnum sem ég hef fengið í gegnum árin. Þýtt úr dönsku.

Sif hjálpaði mér að skilja hvað var að gerast innra með mér, og loksins fann ég ró og festu.

Kona, 28 ára

Sif hjálpaði mér að sjá mynstur sem ég hafði aldrei tekið eftir áður, og skyndilega fór það sem virtist yfirþyrmandi að meika sens.

Tine

Að vinna með Sif gaf mér nýja innsýn í mynstrin mín og viðbrögð, og það breytti því hvernig ég tekst á við erfiðar aðstæður.

Peter Hald, nemandi

Hagnýtar upplýsingar

Allt sem þú þarft að vita áður en þú bókar

Enginn biðlisti

Yfirleitt tími innan fárra daga, og trygging fyrir tíma innan 14 daga.

Opnunartími

Mán.- fös. 9:00 – 19:00
Kvöldtímar sama verð og dagtímar.

Bráðatími innan 24 klst.

Bókaðu á netinu – eða hringdu til +45 25 26 20 20 ef þú finnur ekki tíma.

Verð

Samtalsmeðferð
Mælt er með 100 mín. fyrir fyrsta viðtalið þitt

50 min. – 995 DKK
100 min. – 1,695 DKK

Bráðatími innan 24 klst.
Bókaðu á netinu — eða hringdu til + 45 25 26 20 20 ef þú finnur engan tíma.

100 min. – 1,995 DKK

Ókeypis kynningarsímtal
Bókaðu í netbókunum 
Engin skuldbinding

15 mín. símtal – Ókeypis

Bókunarskilmálar

Þegar þú bókar tíma er hann frátekinn fyrir þig.

Greiðsla

Millifærsla í lok viðtalsins. Hafðu netbankann þinn tilbúinn svo þú getir greitt áður en þú ferð.

Afbókun og breyting á tíma

Að lágmarki 48 klukkustundum fyrir viðtalið þitt. Afbókanir með stuttum fyrirvara og forföll án tilkynningar eru rukkuð að fullu, óháð ástæðu.

Skipta úr staðviðtali yfir í fjarviðtal

Láttu mig vita eins snemma og hægt er. Breytingin þarf að vera skráð áður en viðtalið hefst til að vera gild.

Uppsagnarfrestur

Talinn innan opnunartíma, mán.- fös. kl. 9:00 – 19:00. Skilaboð sem send eru síðar gilda frá kl. 9:00 næsta virka dag.

Til að afbóka eða breyta tíma

Sendu tölvupóst á kontakt@aalborg-psykoterapi.dk eða hringdu til +45 25 26 20 20.

Staðsetning

Aalborg Psykoterapi
Kalkskrænten 20, 9000 Aalborg

Fjarviðtöl
Fyrir skjólstæðinga í Álaborg, Norður-Jótlandi og um alla Danmörku.

Að komast á staðinn
Ókeypis bílastæði við bygginguna eða í götunni. Strætó í 3-5 mín. göngufjarlægð frá Østre Allé eða Sohngårdsholmsvej.

Hjemligt terapirum i Aalborg med lænestol, blødt lys og rolige omgivelser

Algengar spurningar

Það sem aðfluttir og enskumælandi vilja oftast vita áður en þeir hafa samband.

Þarf ég að tala dönsku til að koma í meðferð til þín?

Nei. Öll viðtöl eru í boði á ísleenskuu. Ég tala líka dönsku og ensku, svo þér er velkomið að skipta um tungumál þegar þú þú hefur þörf á því.

Þarf ég að hafa tilvísun frá lækninum mínum til a koma í meðferð hjá þér?
Heimilislæknirinn þinn getur vísað þér til sálfræðings í gegnum danska almannatryggingakerfið (Sygesikring) – en biðtíminn er oft 3 mánuðir eða lengri.
Ég starfa sem sjálfstæður sálfræðimeðferðarfræðingur, og heyri því ekki undir danska almannatryggingarkerfið, en ég get yfirleitt boðið þér tíma innan fárra daga.
Margar einkareknar sjúkratryggingar (t.d. í gegnum vinnuveitandann þinn) greiða fyrir sálfræðimeðferð – athugaðu hvaða möguleika þú hefur og ef þú þarft staðfestingu fyrir vinnuveitenda eða annað láttu mig vita.
Hversu fljótt get ég fengið tíma?

Yfirleitt innan fárra daga. Þú getur bókað á netinu, hringt í síma 25 26 20 20 eða sent tölvupóst – og ég finn tíma sem hentar þér.

Hvernig fer viðtal fram?
Viðtal varir í 50 mínútur, og fyrir fyrsta viðtalið mæli ég oft með 100 mínútum – það gefur okkur tíma til að fara hægar, skilja hvað er í gangi.

Við ræðum um það sem hvílir á þér, og ég leiði samtalið þannig að það sem veldur því að eitt hvað er erfitt fyrir þig verði skýrara. Sum viðtöl eru aðallega samtal; önnur fela í sér einfaldar líkamsvitundaræfingar til að gera hlutina örlítið léttari, ef það finnst rétt fyrir þig.

Hversu mörg viðtöl þarf ég?

Það er misjafnt. Sumir koma í stutt og markvisst ferli, 4–8 viðtöl; aðrir eru lengur í dýpra ferli. Við stillum hraðann saman, og þú ákveður hvenær þú ert tilbúin/n að hætta.

Hvað ef ég er í krísu núna?

Ég býð upp á bráðatíma innan 24 klukkustunda þegar þörf krefur – hringdu beint í mig í +45 25 26 20 20. Ef þú ert í neyðarástandi eða ert með hugsanir um að skaða þig, vinsamlegast hringdu strax í 1813 (geðræn neyðarþjónusta Norður-Jótlands / Region Nordjylland) eða 112.

Getum við hist í fjarviðtali ef ég býe kki í Álaborg?

Já. Ég býð upp á fjarviðtöl fyrir skjólstæðinga um alla Danmörku og erlendis. Fjarmeðferð er góður kostur ef ferðalög eða fjarlægð eru hindrun.

Hefur þú þagnarskyldu?

Já. Sem meðlimur Dönsku sálfræðimeðferðarsamtakanna er ég bundin þagnarskyldu samkvæmt siðareglum. Allt sem þú segir í meðferð er í fullum trúnaði og fer ekki til þriðja aðila nema með þínu skýra samþykki. Undantekningar eru aðeins þegar lög krefja, til dæmis ef hætta er á ferðum.

Enginn biðlisti | Aalborg & á netinu
Danska, íslenska, enska

Þú þarft ekki að gera þetta ein/n

Við finnum saman út úr því hvað þú þarft á að halda  – líka það sem er erfitt er að setja orð á. 

Hafðu samband á þann hátt sem hentar þér best.

— eða veldu ókeypis símtal í bókuninni.

Viltu heldur skrifa eða hringja?